Trúmál
06.06.2011Trú á æðri máttarvöld, framhaldslíf og himnaríki/helvíti
Meirihluti Íslendinga segist trúa á guð eða önnur æðri máttarvöld. Hátt í 13% aðspurðra tóku ekki afstöðu til þess hvort þeir tryðu á æðri máttarvöld eða ekki, en af þeim sem tóku afstöðu sögðust rúmlega sjö af hverjum tíu trúa á æðri máttarvöld á móti tæplega þremur sem sögðust ekki trúa.

Mjög mikill munur er á afstöðu kynjanna til trúar. Næstum 84% þeirra kvenna sem tóku afstöðu sögðust trúa á guð eða önnur æðri máttarvöld á móti tæplega 58% karla. Eldra fólk er einnig mun líklegra til að trúa á æðri máttarvöld en þeir sem yngri eru.
![]()

Svipað er uppi á teningnum þegar spurt er um trú á framhaldslíf. Fjórðungur aðspurðra tekur ekki afstöðu til þeirrar spurningar, en af þeim sem taka afstöðu segjast um tveir af hverjum þremur trúa því að það sé líf eftir þetta líf.
Auk þess sem mun fleiri konur en karlar trúa á framhaldslíf og fleiri meðal eldra fólks en yngra, þá trúa einnig fleiri á framhaldslíf meðal íbúa landsbyggðarinnar en höfuðborgarsvæðisins og fleiri meðal þeirra sem eru tækjulægri en tekjuhærri.

Þegar spurt er um trú á himnaríki og helvíti eru færri sem trúa. Hátt í fjórðungur tekur ekki afstöðu til spurningarinnar og nær sex af hverjum tíu sem taka afstöðu segjast hvorki halda að himnaríki né helvíti sé til. Rúmlega fjórðungur þeirra sem taka afstöðu segist aðeins halda að himnaríki sé til og 15% bæði himnaríki og helvíti. Enginn sagðist trúa því að eingöngu helvíti væri til en ekki himnaríki.
Karlar og þeir sem yngri eru segjast frekar en aðrir halda að hvorki himnaríki né helvíti sé til, og konur og þeir sem eldri eru segjast frekar en aðrir halda að himnaríki sé til. Þeir sem eru með framhalds- eða háskólapróf og þeir sem eru með hærri tekjur eru líklegri til að trúa hvorki á himnaríki né helvíti en þeir sem eru með grunnskólapróf og þeir sem eru með lægri tekjur.
Hvernig varð heimurinn til? Hátt í þriðjungur aðspurðra tók ekki afstöðu til þess hvernig heimurinn varð til en af þeim sem tóku afstöðu telja ríflega tveir af hverjum þremur að hann hafi orðið til í Miklahvelli (big bang) og ríflega fimmtungur telur að guð hafi skapað heiminn. Mikill munur er á afstöðu fólks eftir ýmsum bakgrunnsþáttum. Þannig telja konur frekar en karlar að guð hafi skapað heiminn, þeir sem eldri eru frekar en þeir sem yngri eru, íbúar landsbyggðarinnar frekar en höfuðborgarsvæðisins og þeir sem minni menntun hafa frekar en fólk með meiri menntun. Að sama skapi telja karlar frekar en konur að heimurinn hafi orðið til í Miklahvelli, þeir sem yngri eru frekar en eldra fólk, íbúar höfuðborgarsvæðisins frekar en landsbyggðarinnar og fólk með meiri menntun en minni. Spurt var: Trúir þú á guð eða önnur æðri máttarvöld? Trúir þú því að það sé líf eftir þetta líf (framhaldslíf)? Heldur þú að himnaríki og helvíti séu til? Hvernig heldur þú að heimurinn hafi orðið til?
Niðurstöður sem hér birtast um trúmál eru úr netkönnun Capacent Gallup gerði dagana 5. til 19. maí 20 11. Heildarúrtaksstærð var 1.380 einstaklingar 16 ára eða eldri af öllu landinu og svarhlutfall var 57,7%. Í úrtakinu voru einstaklingar valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.

Allir Þjóðarpúlsar