Um verkefni
Um verkefni
LokaUm netmiðlamælingar Gallup
Gallup á Íslandi er í samstarfi við alþjóðlega netmælingafyrirtækið Kilkaya (áður Linkpulse). Í teljaramælingu Gallup eru mæld atriði eins og fjöldi notenda, innlita og flettinga á hvern mældan netmiðil. Heimsóknir frá tölvum og snjallsímum er hægt að aðgreina og til til viðbótar býðst möguleiki á mælingum á notkun á smáforritum.
Topplistar á heimasíðu Gallup
Gallup birtir vikulega topplista yfir notkun á mældum miðlum á heimasíðu sinni, www.topplistar.gallup.is. Fyrir hvern mældan netmiðil er sýndur fjöldi notenda, innlita og flettinga fyrir meðaldag. Innlend umferð er aðgreind frá erlendri og mögulegt er að sjá myndræna þróun. Til að sjá umferð á undirsíður er hægt að smella á nafn miðilsins ef og til að hlaða niður gögnum úr mynd er hægt að smella á punktana þrjá efst hægra megin á myndunum.
Þær upplýsingar sem koma fram topplistar.gallup.is eiga bara við um umferð almennings á mælda netmiðla ekki alla netmiðla á landinu. Öllum netmiðlum stendur til boða að taka þátt í Netmiðlamælingum Gallup. Verð tekur mið af umfangi umferðar á hvern miðil. Ákveði netmiðill að taka þátt í mælingunni útbýr Gallup mælingarkóða sem netmiðill kemur fyrir í forritun miðilsins. Reikna má með því að það taka u.þ.b. viku að koma inn í mælinguna. Gögn um umferð mældra netmiðla eru aðgengilega á topplistar.gallup.is en auk þess gefst netmiðlum kostur á því að fá aðgang að nánari gögnum um umferð á sinn netmiðil með Kilkaya analytics greiningarhugbúnaðnum gegn aukakostnaði.
Samhliða teljaramælingunni spyr Gallup um heimsóknir á stærstu netmiðlana í Neyslu- og lífstílskönnun Gallup. Þannig er hægt að áætla daglega dekkun netmiðla niður á lýðfræðihópa.
Eldri gögn um notkun netmiðla má finna á síðunni eldritopplistar.gallup.is
Hægt er að óska eftir þátttöku í Netmiðlamælingum Gallup eða fá nánari upplýsingar framkvæmd og verð með því að senda tölvupóst á Guðna Rafn Gunnarsson (gudni.gunnarsson@gallup.is) eða Þórhall Ólafsson (thorhallur.olafsson@gallup.is).
Fríska