Páll Ásgeir Guðmundsson, sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup, verður með erindi á morgunfundi ÍMARK sem fram fer í fundarsal Íslenskrar erfðagreiningar á morgun undir yfirskriftinni "Hvernig lítur árangur út í tölum?" Í erindi sínu mun Páll fjalla um ólíkar nálganir sem Gallup notar til að hjálpa fyrirtækjum að meta árangur auglýsinga og markaðsherferða.
Staður: Íslensk erfðagreining, Sturlugötu 8, 101 Reykjavík
Tími: Þriðjudagur 25. október kl. 8:30-11:30
Fyrirlesarar:
- Ingvi Jökull Logason, framkvæmdastjóri H:N markaðssamskipta
- Páll Ásgeir Guðmundsson, sviðsstjóri markaðsrannsókna Gallup
- Logi Karlsson, sérfræðingur á markaðssviði Íslandsbanka
- Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu
- Fundarstjóri: Áshildur Bragadóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu