Nær 92% Íslendinga segja líklegt að þeir þiggi bólusetningu gegn COVID-19, ríflega 5% segja það ólíklegt og um 3% segja það hvorki líklegt né ólíklegt. Í byrjun september sögðu níu af hverjum tíu það líklegt. Þeim hefur fjölgað mikið sem segja öruggt að þeir þiggi bólusetningu, en nær 65% segja það öruggt nú miðað við tæplega 49% í haust.
Fólk yfir fertugu er líklegra til að þiggja bólusetningu en þeir sem yngri eru. Þeir sem kysu Framsóknarflokkinn, Pírata, Viðreisn eða Vinstri græn ef kosið yrði til Alþingis í dag eru líklegri til að þiggja bólusetningu en þeir sem kysu aðra flokka.
Af þeim sem segja ekki líklegt að þeir þiggi bólusetningu segja flestir ástæðuna vera þá að þeir vilji bíða eftir að það verði komin meiri reynsla á bólusetninguna og mögulegar aukaverkanir hennar, eða sjö af hverjum tíu.
Spurt var:
- Hversu líklegt eða ólíklegt er að þú þiggir bólusetningu gegn COVID-19 þegar byrjað verður að bjóða upp á hana?
- Hvers vegna er ekki líklegra að þú þiggir bólusetningu þegar byrjað verður að bjóða upp á hana?
Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 14. - 27. desember 2020.
Þátttökuhlutfall var 51,3%, úrtaksstærð 1.600 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Gallup.