Lund landsmanna léttist í skammdeginu og er bjartsýni ríkjandi. Væntingavísitala Gallup hækkar um ríflega 22 stig og mælist nú 95,4 stig. Það er hæsta gildi vísitölunnar sem mælst hefur í ár og rúmum sjö stigum hærra en á aðventunni í fyrra.
Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 (lárétta línan á myndinni) merkir að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir.
Væntingavísitala Gallup er byggð á fimm þáttum:
- Mati á núverandi efnahagsaðstæðum
- Væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuði
- Mati á núverandi ástandi í atvinnumálum
- Væntingum til ástands í atvinnumálum eftir 6 mánuði
- Væntingum til heildartekna heimilisins eftir 6 mánuði