Embla V. Sveinbjörnsdóttir datt heldur betur í lukkupottinn á dögunum þegar hún var dregin út í októberhappdrætti Viðhorfahóps Gallups og nældi sér í rafmagnshlaupahjól.
Við óskum Emblu innilega til hamingju og þökkum henni fyrir að segja sína skoðun í Viðhorfahópi Gallup.
Fram til áramóta geta enn fleiri svarendur í Viðhorfahópi Gallup dottið í lukkupottinn. Mánaðarlega verða dregnir út tveir svarendur úr hópnum sem annað hvort vinna rafmagnshlaupahjól eða AirPods Pro.