Samkvæmt niðurstöðum Ferðamannapúlsins fyrir mánuðina júní og júlí, þá eru ferðamenn sem sækja Ísland heim almennt ánægðir með dvöl sína. Meðaleinkunnin sem þeir gefa er um 85 á skalanum 0- 100 sem er svipuð einkunn og hefur mælst framan af ári. Þó er nokkur munur á útkomu eftir þjóðerni og hefur lengd dvalar einnig áhrif á mat fólks á veru sinni á Íslandi.
Ferðamenn sem dvelja 1-2 nætur gefa lægstu einkunnir í Ferðamannapúlsinum og er ánægja þeirra sem dvelja styst marktækt lægri en þeirra sem dvelja lengur. Meðaleinkunn þeirra sem dvelja í 1-2 nætur er 81 miðað við 87 hjá þeim sem dvelja 5 – 14 nætur.
Samkvæmt púlsinum voru Rússar ánægðastir ferðamanna en þeir gáfu 90,8 í meðaleinkunn fyrir júní og júlí, Ungverjar voru næstánægðastir með 90 í meðaleinkunn og Portúgalar koma þar á eftir með 87 í einkunn. Japanir voru hins vegar minnst ánægðir að meðaltali með 73 í einkunn.
Ferðamannapúlsinn mælir heildaránægju og heildarupplifun á heimsókn ferðamanna til Íslands og er samstarfsverkefni Gallup, Isavia og Ferðamálastofu. Mælingar hófust í mars á þessu ári og byggja þær á netföngum ferðamanna sem fara í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Púlsinn byggir á fimm spurningum sem allar vigta jafnt og mæla heildaránægju, gestrisni, hversu líklegir ferðamenn séu til að mæla með Íslandi sem áfangastað, uppfyllingu væntinga og hvort ferðin hafi verið peninganna virði.
Í Ferðamannapúlsinum voru ferðamenn einnig spurðir frekar út í ferðalagið sitt á Íslandi. Samkvæmt púlsinum sækja fleiri ferðamenn landsbyggðina heim yfir sumartímann en að vetri til. Hlutfall þeirra ferðamanna sem sækir höfuðborgina heim helst stöðugt í kringum 95% en aðrir landshlutar fá mun hærra hlutfall ferðamanna að sumri til. Mestur reyndist munurinn á Norðurlandi og Vestfjörðum þar sem ríflega þrefalt fleiri heimsækja þá landshluta að sumri en að vetri.
Að jafnaði segjast ríflega tveir þriðjuhlutar erlendra ferðamanna nýta hótelgistingu í dvöl sinni yfir vetrarmánuðina en samsvarandi hlutfall fer hins vegar niður í 50% yfir sumartímann. Því lækkar hlutfall erlendra ferðamanna sem nýtir sér hótelgistingu um ríflega 16% milli vetrar og sumars. Á sama tíma eykst hlutfall þeirra sem nýtir sér gistingu í heimahúsum (s.s. Airbnb, heimilisskipti og fleira) töluvert og nær upp í 29%, en alls segjast tæplega 22% hafa leigt sér íbúð í gegnum Airbnb.
Töluverður munur er á hlutfalli ferðamanna sem nýta sér rútuferðir og skipulagðar ferðir að vetri og sumri. Tæplega 53% nota rútur yfir vetrartímann en sama hlutfall er einungis 32% að sumri. Á sama tíma eykst hlutfall ferðamanna sem leigir bíla umtalsvert, úr 40% að vetri upp í 60% yfir sumarið.
„Það er mikilvægt að fá þessar upplýsingar um upplifun ferðamanna hérlendis yfir háannatímann. Það er ánægjulegt að sjá að aukinn fjöldi ferðamanna hefur ekki áhrif á heildaránægju þeirra sem koma til landsins, en hún er að mælast svipuð yfir vetrar- og sumartímann. Mælingar á ánægju ferðamanna skiptir miklu máli fyrir framtíðarspár en ánægðir ferðamenn eru líklegri til að koma aftur til landsins og mæla með ferðalagi til landsins,“ segir Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Gallup.