Enn eykst munurinn á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og er hann nú hátt í átta prósentustig. Rösklega 28% segjast myndu kjósa Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag en nær 21% Sjálfstæðisflokkinn. Fylgi annarra flokka er um 5-10%. Litlar breytingar eru þó á fylgi flokka milli mánaða eða á bilinu 0,1-1,1 prósentustig. Rúmlega 10% kysu Framsóknarflokkinn og Pírata, tæplega 8% Viðreisn, nær 7% Miðflokkinn, tæplega 6% Vinstri græn og Flokk fólksins og næstum 5% Sósíalistaflokk Íslands.
Rúmlega 15% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rúmlega 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.
Ríflega 37% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Spurt var:
- Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
- En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
- Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. - 31. maí 2023. Heildarúrtaksstærð var 10.316 og þátttökuhlutfall var 48,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.