Gallup óskar eftir að ráða öflugan liðsmann. Í boði er spennandi starf við að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu á sviði markaðs- og viðhorfsrannsókna.
Starfssvið:
- Öflun nýrra viðskiptavina og verkefna
- Þjónusta og samskipti við viðskiptavini
- Hönnun rannsókna og verkefnastjórnun
- Kynning og túlkun niðurstaðna sem og önnur eftirfylgni
- Þróun rannsóknaraðferða og mælitækja
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfinu
- Reynsla / þekking á sviði rannsókna
- Reynsla / þekking á sviði markaðsmála
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku
Viðkomandi þarf einnig að:
- Hafa mikla þjónustulund
- Eiga gott með að vinna sjálfstætt og með öðrum
- Eiga auðvelt með að tala fyrir framan hóp
- Vera metnaðarfull(ur)
- Búa yfir miklu frumkvæði
Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2018
Umsókn ásamt kynningarbréfi og ferilskrá skal senda á Ragnheiði Dagsdóttir hjá Capacent ráðningum, ragnheidur.dagsdottir@capacent.is