Væntingavísitala Gallup hækkar um tæp átta stig frá því í febrúar og mælist nú 114,4 sig. Annan mánuðinn í röð mælist vísitalan yfir 100 stigum og leita þarf aftur til apríl 2018 til að finna hærra gildi.
Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 (lárétta línan á myndinni) merkir að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir.
Væntingavísitala Gallup er byggð á fimm þáttum:
- Mati á núverandi efnahagsaðstæðum
- Væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuði
- Mati á núverandi ástandi í atvinnumálum
- Væntingum til ástands í atvinnumálum eftir 6 mánuði
- Væntingum til heildartekna heimilisins eftir 6 mánuði