Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um rösklega fjögur prósentustig milli mánaða en nær 42% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina. Er það minnsti stuðningur sem núverandi ríkisstjórn hefur mælst með í Þjóðarpúlsi Gallup.

Fylgi við Pírata eykst
Helsta breyting á fylgi flokka milli mánaða er að liðlega 12% segjast myndu kjósa Pírata færu kosningar til Alþingis fram í dag en fyrir mánuði var hlutfallið ríflega 10%. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka, eða á bilinu 0 - 1,2 prósentustig. Slétt 24% segjast myndu kjósa Samfylkinguna, rösklega 22% Sjálfstæðisflokkinn, næstum 11% Framsóknarflokkinn, tæplega 8% Viðreisn, nær 7% Vinstri græn, tæplega 6% Flokk fólksins, rífelga 5% Miðflokkinn og 5% Sósíalistaflokk Íslands.
Ríflega 15% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Spurt var:
- Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
- En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
- Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. - 28. febrúar 2023. Heildarúrtaksstærð var 9.517 og þátttökuhlutfall var 49,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.