Rúmlega 9 af hverjum 10 Íslendingum 18 ára og eldri nota Facebook samkvæmt samfélagsmiðlamælingu Gallup í maí 2017. Nokkur aukning hefur orðið í notkun á Snapchat og Instagram en fyrir ári síðan notuðu 58% Snapchat og 40% Instagram.
Á myndinni má sjá hlutfall Íslendinga sem nota hver miðil fyrir sig en almennt er yngra fólk líklegra til að nota samfélagmiðla en þeir sem eldri eru.
Samfélagsmiðlamæling Gallup er gerð tvisvar sinnum á ári (maí/nóv). Hægt er að kaupa skýrslu með ítarlegri greiningu sem veitir góða innsýn í samfélagsmiðlanotkun Íslendinga og svarar m.a. spurningum eins og:
- Hvaða samfélagsmiðla er fólk að nota?
- Hversu virkir eru Íslendingar á hinum ýmsu samfélagsmiðlum?
- Hversu mikilvægir eða lítilvægir eru viðkomandi samfélagsmiðlar í huga fólks?
- Hvað er fólk fylgja mörgum fyrirtækjum á samfélagsmiðlum og skiptir það fólk máli að geta haft samband við þau í gegnum samfélagsmiðla?
Frekari upplýsingar um Samfélagsmiðlamælingu Gallup, framkvæmd könnunar og skýrslu, gefur sviðsstjóri markaðsrannsókna Ólafur Elínarson olafur.elinarson@gallup.is