Helsta breytingin á fylgi flokka milli mánaða er að fylgi Samfylkingarinnar eykst um tæplega þrjú prósentustig. Rúmlega 19% segjast myndu kjósa Samfylkinguna og er það mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í janúar 2015. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,1-1,9 prósentustig. Nær 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 12% Pírata, næstum 12% Vinstri græn, liðlega 10% Viðreisn, tæplega 9% Miðflokkinn, ríflega 8% Framsóknarflokkinn, nær 6% Flokk fólksins og liðlega 1% segist myndu kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag.

Rúmlega 9% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og rösklega 8% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

fylgisept2018

Fylgi við ríkisstjórnina stendur í stað milli mánaða, en um helmingur þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja hana.

rikisstjornsept2018

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. ágúst til 2. september 2018. Heildarúrtaksstærð var 7.094 og þátttökuhlutfall var 52,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,4-1,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup