Eftir talsverða hækkun í september lækkar Væntingavísitala Gallup nú um ríflega 12 stig og mælist nú 86,9 stig sem er fimm stigum lægra gildi en í október í fyrra.

Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 (lárétta línan á myndinni) merkir að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir.

Væntingavísitala Gallup er byggð á fimm þáttum:

  • Mati á núverandi efnahagsaðstæðum
  • Væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuði
  • Mati á núverandi ástandi í atvinnumálum
  • Væntingum til ástands í atvinnumálum eftir 6 mánuði
  • Væntingum til heildartekna heimilisins eftir 6 mánuði

Nánari upplýsingar um Væntingavísitölu Gallup