Væntingavísitala Gallup lækkar um 8,5 stig frá síðasta mánuði og mælist 43,8 stig í ágúst. Gildi vísitölunnar nú er tæpum 50 stigum lægra en á sama tíma í fyrra og leita þarf aftur til októbermánaðar 2010 til að finna lægra gildi vísitölunnar.
Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 (lárétta línan á myndinni) merkir að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir.
Væntingavísitala Gallup er byggð á fimm þáttum:
- Mati á núverandi efnahagsaðstæðum
- Væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuði
- Mati á núverandi ástandi í atvinnumálum
- Væntingum til ástands í atvinnumálum eftir 6 mánuði
- Væntingum til heildartekna heimilisins eftir 6 mánuði