Væntingavísitala Gallup hefur tilhneigingu til að hækka í kringum kosningar og eru kosningarnar í ár engin undantekning. Vísitalan hækkar um tæp 19 stig milli mánaða og mælist nú 125,3 stig.
Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 (lárétta línan á myndinni) merkir að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir.
Væntingavísitala Gallup er byggð á fimm þáttum:
- Mati á núverandi efnahagsaðstæðum
- Væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuði
- Mati á núverandi ástandi í atvinnumálum
- Væntingum til ástands í atvinnumálum eftir 6 mánuði
- Væntingum til heildartekna heimilisins eftir 6 mánuði