Styrkleikamiðuð stjórnun og menning þar sem starfsfólk nýtir styrkleika sína í starfi hefur jákvæð áhrif á helgun þess, ánægju og árangur. Aukin vitund um eigin styrkleika og fjölbreytileika samstarfsfólks eykur umburðarlyndi, traust og samstöðu.
Í styrkleikamiðaðri stjórnendaeflingu og styrkleikavinnu með teymum fara þátttakendur í gegnum styrkleikamat Gallup (CliftonStrengths) sem gerir þeim kleift að bera kennsl á eigin styrkleika.
Styrkleikaþjálfun í kjölfarið felst í að aðstoða starfsfólk, stjórnendur og teymi við að skilja styrkleika sína, hvernig þeir hafa áhrif á hegðun þess, túlkun á umhverfinu og samskipti við aðra.
- Við viljum að fólk eigni sér styrkleika sína og læri að nýta og efla þá í daglegu starfi og lífi, sér og vinnustað sínum til aukins árangurs.
- Við viljum að fólk skilji hvað það er innra með því sem skapar drifkraft þess og hvatningu.
Í þjálfuninni er lögð áhersla á mikilvægustu frammistöðumarkmiðin, helstu áskoranir og skilgreint hver tilætlaður árangur er hverju sinni.
Í rannsóknum Gallup í BNA kemur meðal annars fram að:
- Fólk sem nýtir styrkleika sína er 6 SINNUM líklegra til að vera helgað í starfi, en helgun starfsfólks hefur veruleg áhrif á framleiðni og árangur fyrirtækja
- Í einingum þar sem stjórnendur fá endurgjöf á styrkleika sína er hagnaður 8,9% MEIRI en í einingum þar sem þeir fá ekki endurgjöf á styrkleika sína
- Teymi sem einblína á styrkleika skila 12,5% MEIRI hagnaði en teymi sem gera það ekki
Ráðgjafar Gallup eru vottaðir styrkleikaþjálfarar frá Gallup í London.
Hafðu samband við ráðgjafa okkar til að panta styrkleikamat og samtal, eða til að fá frekari upplýsingar.
Tengt efni:
- Vinnustaðagreiningar
- Vinnustofur með stjórnendum
- Vinnustofur með starfsfólki
- Þjálfun lykilstarfsfólks „ meistara"
- Launakannanir
- Stjórnendamat
- Greiningar- og lausnarvinna með einstökum starfshópum innan vinnustaða
- Púlskannanir
- Starfsmannasamtöl, samskipti og endurgjöf
- Styrkleikamat (Clifton Strengths)
- Markþjálfun