Hagkvæm leið að upplýsingum

Spurningavagnar Gallup er hagkvæm og fljótleg leið þegar stjórnendur vilja fá áreiðanlegar upplýsingar um ákveðinn hóp.

Gallupvagn

  • Svarendur eru almenningur á Íslandi
  • Veitir upplýsingar um viðhorf og væntingar almennings á Íslandi
  • Gagnaöflun tekur eina viku
  • Bakgrunnsbreytur eru kyn, aldur, búseta, menntun og tekjur
  • Fer af stað í hverri viku

Fyrirtækjavagn

  • Svarendur eru framkvæmda- og fjármálastjórar á Íslandi
  • Veitir upplýsingar um viðhorf og væntingar stjórnenda íslenskra fyrirtækja
  • Niðurstöður eru greindar eftir staðsetningu fyrirtækis, ársveltu, starfsmannafjölda, starfsgrein og starfsemi á fyrirtækjamarkaði eða neytendavörumarkaði
  • Fer af stað a.m.k. fjórum sinnum á ári

Akureyrarvagn

  • Svarendur eru almenningur á Akureyri
  • Veitir upplýsingar um viðhorf og væntingar Akureyringa
  • Fer af stað tvisvar sinnum á ári

Fasteignakaupendavagn

  • Svarendur eru fólk sem hefur keypt fasteign á síðustu mánuðum á Íslandi
  • Veitir m.a. upplýsingar um fjármögnun og ástæður fyrir staðsetningarvali fasteignar
  • Fer af stað einu sinni á ári