Um Gallup
GI Rannsóknir ehf er eigandi Gallup á Íslandi. Starfsemi fyrirtækisins nær til fjölbreyttra rannsókna og ráðgjafar undir merkjum Gallup. Fyrirtækið er til húsa á Suðurlandsbraut 6 í Reykjavík en er einnig með starfsemi á Akureyri.
Gallup býður uppá staðlaðar og sérhannaðar lausnir fyrir fyrirtæki, stofnanir og hagsmunasamtök af öllum stærðum og gerðum byggt á viðurkenndum rannsóknaraðferðum. Gallup er í samstarfi við leiðandi alþjóðleg rannsóknarfyrirtæki og sækir þangað sérhæfðar lausnir og þekkingu.
Grunnurinn að Gallup á Íslandi var lagður árið 1990 þegar rannsóknarfyrirtækið Íslenskar markaðsrannsóknir var stofnað. Síðar fékk fyrirtækið umboðið fyrir Gallup á Íslandi. Sérhæfing þessa fyrirtækis var á sviði markaðsrannsókna og strax á fyrstu árunum gat það sér gott orð fyrir vandaða og trausta aðferðafræði í sínum könnunum.
Gallup hefur tengingar við nokkur alþjóðleg rannsóknarfyrirtæki. Þar má meðal annars nefna Gallup í Bandaríkjunum, Nielsen og Kantar Media.
GI Rannsóknir er í 100% eigu Hamarshyls ehf. Eigendur Hamarshyls ehf eru Agnar Lemacks ,Huginn Freyr Þorsteinsson, Ingvar Sverrisson og Valdimar Halldórsson.
GI Rannsóknir ehf fékk viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki ársins 2024 af Creditinfo.
Dýrmæt þekking starfsfólks
Starfsfólk Gallup býr yfir áratuga reynslu og þekkingu á sviði rannsókna sem gerir því kleift að velja þær rannsóknaraðferðir sem best eiga við hverju sinni. Með eigin vöruþróun og samvinnu við erlend rannsóknarfyrirtæki býður Gallup uppá staðlaðar eða sérhannaðar lausnir fyrir fyrirtæki og hagsmunasamtök af öllum stærðum og gerðum.
Allar byggjast þessar lausnir á viðurkenndum rannsóknaraðferðum. Starfsfólk Gallup leggur metnað sinn í að skilja umhverfi viðskiptavina sinna og veita þeim innsýn í hlutina, sem er grunnurinn að árangursríkum ákvörðunum. Gallup fékk opinbera ISO vottun í júní 2004 og tekur ISO 9001 gæðastaðallinn til allrar starfsemi Gallup.
Strangar reglur um meðferð upplýsinga
Gallup leggur mikið upp úr trúnaði og öruggri meðferð persónuupplýsinga. Í allri framsetningu á niðurstöðum er þess gætt að ekki sé hægt að rekja svör til einstakra svarenda. Allir starfsmenn hafa skrifað undir trúnaðar- og þagnareið, sem á jafnt við gagnvart svarendum og viðskiptavinum.
Gallup starfar einnig eftir ströngum siðareglum sem settar eru af alþjóðasamtökum markaðsrannsóknafyrirtækja ESOMAR. Við virðum þau lög sem Persónuvernd starfar eftir og setur um geymslu og meðferð persónuupplýsinga og tilkynnum Persónuvernd um þær kannanir sem lög kveða á um.